39. þingi AN lokið
70 fulltrúar, frá níu af ellefu stéttarfélögum á Norðurlandi sátu 39. þing Alþýðusambands Norðurlands sem fram fór á Illugastöðum í Fnjóskadal 24. og 25. september 2026. Á þinginu var samhljóða samþykkt ályktun um byggða- og atvinnumál.

70 fulltrúar, frá níu af ellefu stéttarfélögum á Norðurlandi sátu 39. þing Alþýðusambands Norðurlands sem fram fór á Illugastöðum í Fnjóskadal 24. og 25. september 2026. Á þinginu var samhljóða samþykkt ályktun um byggða- og atvinnumál.
Fjölbreytt og góð erindi
Fjölmargir gestir mættu á þingið í eigin formi eða rafrænu og voru með fjölbreytt erindi. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, 1. varaforseti ASÍ, flutti ávarp í stað forseta ASÍ sem komst ekki á þingið eins og til stóð. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri í gervigreind hjá Háskólanum á Akureyri var með fyrirlestur sem bar nefnið Gervigreind á mannamáli. Róbert Farestveit, sviðsstjóri Hagfræði- og greiningasviðs ASÍ, fór yfir stöðuna og horfur í samfélaginu. Björn Gíslason, verkefnisstjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka, fór yfir uppbygginguna á atvinnusvæðinu, í fortíð, nútíð og framtíð. Einar Georgsson, framkvæmdastjóri Brákar, var með kynningu á leigufélögunum Bríet og Brák sem leiguhúsnæði framtíðarinnar. Iða Marsibil Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Bríetar, forfallaðist og því fjallaði Einar um bæði félögin. Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, fjallaði um ASÍ sem samnefnara aðildarfélaga og urðu góðar umræður undir því erindi.
Tryggvi Jóhannsson, formaður Einingar-Iðju og formaður orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum, hóf seinni daginn þegar hann fjallaði um hugmyndir að stækkun orlofsbyggðarinnar og urðu góðar umræður undir þeim lið og vel tekið í erindið. Áður en kosningar fóru fram var farið yfir og samþykktir ársreikningar AN fyrir árin 2024 og 2025 sem og fjárhagsáætlun fyrir árin 2026 og 2027. Einnig var samþykkt breyting á 8. gr. laga AN þannig að fjöldi fulltrúa á þing AN fækki og verði 70 í stað 100. Með uppbótarfulltrúum, þar sem öll félög fá að lágmarki tvo fulltrúa á hvert þing, verða fulltrúar í raun 76.
Ný stjórn AN
Á myndinn i sem fylgir fréttinni má sjá nýja stjórn AN. F.v. Eydís, Trausti, Álfheiður, Atli og Ingimar. Á myndina vantar Nönnu sem átti ekki heimangengt.
Tillaga kjörnefndar um nýja stjórn Alþýðusambands Norðurlands árin 2026-2028 var samþykkt samhljóða.
Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, var kjörinn nýr formaður AN til næstu tveggja ára. Með honum í stjórn eru Atli Hjartarsson, frá Öldunni stéttarfélagi, sem er varaformaður stjórnar, og Ingimar Atli Knútsson, frá Framsýn sem er ritari stjórnar.
Varamenn í stjórn eru Álfheiður Ösp Haraldsdóttir, frá Samstöðu, Eydís Bjarnadóttir, frá FVSA, og Nanna Steina Höskuldsdóttir, frá Framsýn.
Einnig voru kjörnir tveir skoðunarmenn reikninga til tveggja ára; Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir, frá Einingu-Iðju, og Stefanía Árdís Árnadóttir, frá FVSA. Arna Dröfn Björnsdóttir, frá Öldunni stéttarfélagi, var kjörin varamaður þeirra.


