37. þing Alþýðusambands Norðurlands

30. september 2022

77 fulltrúar, frá öllum stéttarfélögum á Norðurlandi sátu 37. þing Alþýðusambands Norðurlands sem fram fór á Illugastöðum í Fnjóskadal 29. og 30. september 2022. Þingið var í fyrsta sinn pappírslaust og tókst það í alla staði mjög vel.


Fjölmargir gestir mættu á þingið og voru með erindi. Helga Þyri Bragadóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá VIRK í Eyjafirði, fjallaði um VIRK starfsendurhæfingarsjóð og starfsemi hans. Ellen Jónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra og Austurlandi, fjallaði um Vinnumálastofnun – stöðu og framtíðarsýn. Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Kjarnafæðis Norðlenska ehf., fjallaði um stöðu og framtíð í kjötvinnslu á Íslandi. Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, sagði frá félaginu og hvað væri á döfinni hjá þeim. Jóna Finndís Jónsdóttir, forstöðumaður réttindasviðs Stapa, fjallaði um lífeyrismál.


Þá sögðu fjórir trúnaðarmenn frá starfi trúnaðarmannsins og viðhorfinu til þess. Þetta voru þær Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir og Sigríður Þórunn Jósepsdóttir, sem eru í Einingu-Iðju, Sirrý Laxdal, sem er í FVSA og Guðmunda Steina Jósefsdóttir, sem er í Framsýn.


Í lok fyrri dags var unnið í hópum þar sem fjallað var um samvinnu og samstarf Alþýðusambands Norðurlands við Orlofsbyggðina á Illugastöðum. Í upphafi vinnunnar fjallaði Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, aðeins um samvinnuna og samskiptin. Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og Guðrún Edda Baldursdóttir, frá ASÍ, stjórnuðu vinnunni sem var með þjóðfundarfyrirkomulagi. Niðurstöður hópavinnu og atkvæðagreiðslu um hana voru kynntar að morgni föstudagsins.


Ný stjórn AN
Anna Júlíusdóttir, frá Einingu-Iðju, var kjörin nýr formaður AN til næstu tveggja ára. Með henni í stjórn eru Aneta Potrykus, frá Verkalýðsfélagi Þórshafnar, sem er varaformaður stjórnar og Atli Hjartarsson, frá Öldunni stéttarfélagi, sem er ritari stjórnar. Varamenn í stjórn eru Vigdís Edda Guðbrandsdóttir, frá Samstöðu, Guðný Grímsdóttir, frá Framsýn, og Trausti Jörundarson, frá Sjómannafélagi Eyjafjarðar.



Eftir Ásgrímur Örn Hallgrímsson • 25. september 2026
70 fulltrúar, frá níu af ellefu stéttarfélögum á Norðurlandi sátu 39. þing Alþýðusambands Norðurlands sem fram fór á Illugastöðum í Fnjóskadal 24. og 25. september 2026. Á þinginu var samhljóða samþykkt ályktun um byggða- og atvinnumál .
Eftir Ásgrímur Örn Hallgrímsson • 25. september 2026
Ályktun um byggða- og atvinnumál
Fleiri færslur